Saga Kistufells

Kistufell var stofnað í Reykjavík árið 1952 af bræðrunum Jónasi og Guðmundi Jónassonum frá Völlum á Kjalarnesi undir Esjuhlíðum. Bærinn stendur við rætur Kistufell, sem er hluti Esjunnar.
Fyrirtækið rak vélaverkstæði og varahlutaverslun að Brautarholti 16. Þetta fyrirkomulag breyttist um áramótin 1993 og 1994. Þá skiptu þeir rekstrinum upp í Varahlutaverslunina Kistufell og Vélaverkstæðið Kistufell.
Varahlutaverslunin Kistufell fékk öll erlendu umboðin og þá varahluti sem tilheyrðu rekstrinum en vélaverkstæðið fékk öll verkfæri og vélar sem tilheyrðu þessum sameiginlega rekstri. Þessi fyrirtæki eru í dag tvær sjálfstæðar og aðskildar einingar.
Varahlutaverslunin Kistufell er áfram að Brautarholti 16.
Mánudaga - Föstudaga:
08.00 - 17.00
Laugardaga:
09.00 - 16.00
Sunnudaga:
LOKAÐ


